miniMasterClass fyrir Landbúnaðarháskóla Íslands
Örnámskeið í vísindalegri nýsköpun hjá Landbúnaðarháskóla Íslands 19. nóvember

Hefur þú velt því fyrir þér hvernig rannsóknarniðurstöður þínar gætu haft áhrif utan akademíunnar?
Auðna tæknitorg býður rannsakendum og starfsfólki Landbúnaðarháskóla Íslands á stutt MasterClass námskeið um hagnýtingu rannsókna og áhrif þeirra, þann 19. nóvember kl. 13:00–16:00. Farið verður meðal annars yfir virðissköpun, hlutverk hugverkaréttinda og fjármögnunarmöguleika.
📅 19. nóvember | 13:00–16:00
📍 Keldnaholt
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu, en
skráning
er nauðsynleg.



