Auðvarpið: Samstarf er lykillinn
Samstarf er lykillinn - Daníel Guðbjartsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar

Í nýjasta þætti Auðvarpsins er það Daníel Guðbjartsson, nýr forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, dótturfélags alþjóðlega líftæknifyrirtækisins Amgen, sem sest í settið hjá Sverri Geirdal.
En hver er Daníel Guðbjartsson? Hver er saga Íslenskrar erfðagreiningar? Hvernig notar fyrirtækið gervigreind og hvaða árangri væri hægt að ná með aukinni samvinnu við háskólasamfélagið?
Mikilvægi samstarfs og samtals, erfðafræði og alls kyns skemmtilegt í þessum þætti sem er aðgengilegur á Apple podcasts og Spotify.
Þátturinn er í boði Auðnu tæknitorgs, Kveikju, Vísindagarða Háskóla Íslands og IHPC.



