MasterClass: Landspítali og Háskóli Íslands

Þegar rannsóknir hafa raunveruleg áhrif: MasterClass Auðnu í apríl með Landspítala og Háskóla Íslands

Í síðustu viku héldum við vel heppnað MasterClass námskeið í samvinnu við EDIH-IS fyrir þátttakendur á nýsköpunarnámsbraut Landspítalans og doktorsnema við Háskóla Íslands.


MasterClass námskeiðið er eins konar crash-course í vísindalegri nýsköpun þar sem farið er yfir lykilatriðin í því að færa þekkingu úr rannsóknum yfir í raunveruleg áhrif með blöndu af fyrirlestrum og teymisvinnu. 


Dagskrá

Á þessu tveggja daga námskeiði fengu þátttakendur meðal annars fræðslu um hvernig þekkingar- og tækniyfirfærsla getur stuðlað að hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna, mikilvægi hugverkaverndar og hvernig hægt er að þróa hugmyndir með aðstoð Business Model Canvas. Einnig var farið vel yfir styrkjaumhverfið á Íslandi og í Evrópu og heim fjárfestingasjóða. Í lok námskeiðsins fengu þátttakendur tækifæri til að kynna verkefnin sín fyrir hópnum og nýttu þau þá öll þau verkfæri sem þau fengu á námskeiðinu.


Við þökkum Maríu Ellingsen, Marisa Punzi frá HØIBERG - European Patent Attorneys, Sverri Geirdal, Einari Mäntylä, Guðjóni Ólafssyni frá Gleipnir Bioforge, Hilmari Janussyni frá Iðunni framtakssjóði og Auðnu teyminu kærlega fyrir góða fyrirlestra.


Einnig viljum við þakka metnaðarfullum og áhugasömum hópi fyrir virka þátttöku - við hlökkum til að fylgjast með verkefnum þeirra áfram.


Hér á heimasíðu Auðnu er hægt að lesa meira um MasterClass og skoða dagskrá fyrri námskeiða, en næsta námskeið verður með Háskólanum í Reykjavík í maí.

DEILA

FLEIRI GREINAR

14. apríl 2026
Vísindi á vordögum: Frá rannsóknum til raunverulegra áhrifa
26. mars 2026
Metár í íslenskum einkaleyfisumsóknum til Evrópsku einkaleyfastofunnar!
25. mars 2026
Tveggja daga MasterClass námskeið í vísindalegri nýsköpun.
Fleiri greinar