Auðvarpið: Greenfish - næsti einhyrningur landsins

Sveinn Sigurður Jóhannesson, stofnandi og framkvæmdastjóri segir frá!

Í nýjasta þætti Auðvarpsins mætti Sveinn Sigurður Jóhannesson, stofnandi og framkvæmdastjóri GreenFish, í settið til Sverris Geirdal og sagði frá ævintýrinu í kringum þetta spennandi nýsköpunarfyrirtæki sem gæti hæglega orðið næsti einhyrningur Íslands.


Hugmyndin að GreenFish kviknaði út frá BS ritgerð Sveins Sigurðar í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík, en líkan GreenFish spáir á nákvæman hátt fyrir um staðsetningu, magn og gæði fiskafla og er í dag notað um allan heim. Fyrirtækið, sem var stofnað um mitt ár 2023, er í dag með ca. 12 starfsmenn í fullu starfi og skrifstofur í 2 löndum.


Þátturinn er aðgengilegur á Apple podcasts og Spotify, en hann er í boði Auðnu tæknitorgs, Kveikju, Vísindagarða Háskóla Íslands og IHPC.


Auðvarpið er í boði Auðnu tæknitorgs, Kveikju, Vísindagarða Háskóla Íslands og IHPC.


DEILA

FLEIRI GREINAR

21. ágúst 2026
Frá hugmynd til áhrifa: Nýsköpun í þágu framtíðar
20. ágúst 2026
Auðna hvetur rannsakendur sem stefna á alþjóðlegan markað til að kynna sér REACH-hraðalinn
13. júlí 2026
Nýr Auðvarpsþáttur er kominn í loftið!
Fleiri greinar