Auðvarpið: Gísli Karl Gíslason - Hvað eru Vísindagarðar?

Nýr Auðvarpsþáttur er kominn í loftið!

"Hér á framtíðin heima" er slagorð Vísindagarða Háskóla Íslands, en hvað eru Vísindagarðar? 

Nýr Auðvarpsþáttur er kominn í loftið, en í þessum þætti mætir Gísli Karl Gíslason, tæknistjóri Vísindagarða, í settið til Sverris Geirdal.

Gísli fer yfir sögu Vísindagarða, starfsemina í dag, nýtt vörumerki og auðvitað djúptæknisetrið sem er væntanlegt í Vatnsmýrina. Sverrir og Gísli ræða einnig Glóð verkefnið, algorithmann á bak við Dolby Atmos hljóðkerfið, samfélagið í Mýrinni í Grósku og margt annað fróðlegt og skemmtilegt.


Þátturinn er aðgengilegur á Apple podcasts og Spotify, en hann er í boði Auðnu tæknitorgs, Kveikju, Vísindagarða Háskóla Íslands og IHPC.


Auðvarpið er í boði Auðnu tæknitorgs, Kveikju, Vísindagarða Háskóla Íslands og IHPC.

DEILA

FLEIRI GREINAR

21. október 2026
Örnámskeið í vísindalegri nýsköpun hjá Landbúnaðarháskóla Íslands 19. nóvember
13. október 2026
Örnámskeið í vísindalegri nýsköpun á Akureyri 2. nóvember
Eftir Ingunn Sigurpálsdóttir • 13. október 2026
Vel heppnað MasterClass námskeið í vísindalegri nýsköpun
Fleiri greinar