Auðvarpið: Halldóra Mogensen og Mannvæn tækni - erum við á réttri leið?

Nýr Auðvarpsþáttur er kominn í loftið!

Mannleg ásýnd tækninnar. Er allt eins og það á að vera eða er ástæða til að staldra við og hafa varann á? Halldóra Mogensen mætti í settið til Sverris Geirdal til að ræða málin. Halldóra er stjórnarformaður og meðstofnandi Samtaka um mannvæna tækni og hefur talsverðar áhyggjur af þeirri vegferð sem við erum á.
 
Í þessum þætti varpa Sverrir og Halldóra ljósi á stöðuna - er tæknin ekki fyrir fólk? Og þá fyrir allt fólk? Hvernig tæklum við gallana í gervigreindinni? Hverju mun gervigreindin breyta og hvernig á mannfólkið, samfélagið og vinnumarkaðurinn að aðlagast? 


Þátturinn er aðgengilegur á Apple podcasts og Spotify, en hann er í boði Auðnu tæknitorgs, Kveikju, Vísindagarða Háskóla Íslands og IHPC.


DEILA

FLEIRI GREINAR

21. ágúst 2026
Frá hugmynd til áhrifa: Nýsköpun í þágu framtíðar
20. ágúst 2026
Auðna hvetur rannsakendur sem stefna á alþjóðlegan markað til að kynna sér REACH-hraðalinn
11. maí 2026
Sveinn Sigurður Jóhannesson, stofnandi og framkvæmdastjóri segir frá!
Fleiri greinar