ASTP ráðstefnan 2025

Ráðstefna ASTP í Vilnius: Staðan á tækni- og þekkingaryfirfærslu í Evrópu

Árleg ráðstefna ASTP var haldin í Vilníus í Litháen í maí sl. ASTP eru evrópsk samtök sérfræðinga í þekkingaryfirfærslu þar sem fulltrúar frá háskólum, atvinnulífi og öðrum geirum koma saman til að miðla reynslu og finna nýjar leiðir til að efla nýsköpun, samfélagsleg áhrif og samstarf.

 

Starfsfólk Auðnu mætti á ráðstefnunan en þar hittum við fjölda kollega víðs vegar að úr Evrópu og fengum tækifæri til að ræða áskoranir, deila góðum lausnum og læra hvert af öðru. Dagskráin var fjölbreytt en þar var að finna áhugaverð erindi, málstofur og vinnustofur. Fjallað var meðal annars um hlutverk gervigreindar í þekkingaryfirfærslu, áskoranir sem tengjast hugbúnaði og stafrænum nýjungum og leiðir til að styrkja ferla við stofnun sprotafyrirtækja.


Tækifæri til að tengjast og efla samstarf

Óformleg samtöl yfir kaffibolla á milli fyrirlestra reyndust ekki síður dýrmæt. Við náðum að tengjast samstarfsfólki víðs vegar að og vonumst til að þau tengsl skili sér í áframhaldandi samstarfi á komandi misserum.

 

Við njótum góðs af því að tilheyra þessu öfluga, alþjóðlega samfélagi fólks sem vinnur að því að koma nýsköpun út úr rannsóknarstofunni og út í samfélagið og þökkum ASTP fyrir vel skipulagða og eftirminnilega ráðstefnu.

DEILA

FLEIRI GREINAR

13. maí 2025
Hvernig eflum við næstu kynslóð vísindadrifinna frumkvöðla?
8. maí 2025
Ingunn Sigurpálsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Auðnu tæknitorgs
14. apríl 2025
Þriggja daga MasterClass námskeið fyrir starfsfólk Landspítalans og doktorsnema í heilbrigðistækni
Fleiri greinar