MARKAÐSTORG

TÆKIFÆRI Í

SJÓNMÁLI

“TÆKIFÆRI GRÍPTU GREITT, GIFTU MUN ÞAÐ SKAPA, JÁRNIÐ SKALTU HAMRA HEITT, AÐ HIKA ER SAMA OG TAPA.” - STEINGRÍMUR THORSTEINSSON

tækifæri til uppskölunar og samfélagslegs ágóða

Hvaðan má vænta óvæntra uppfinninga og lausna sem valdið geta straumhvörfum og hjálpað okkur til að mæta helstu áskorunum sem mannkynið stendur frammi fyrir? Við teljum að augljósa svarið sé frá vísindasamfélaginu. Í stórum sem smáum vísindalegum lausnum við alvöru vandamálum felast oft tækifæri til uppskölunar og samfélagslegs ágóða. Við hjá Auðnu Tæknitorgi tengjum saman lausnir sem byggja á vísindum við þá sem ætla að leysa málin, við sjáum til þess að hugað hafi verið almennilega að hugverkavernd og aðstoðum við að þroska og gera lausnir tækar fyrir bæði atvinnulíf og fjárfesta svo þær komist í gagnið.


Þekkingar- og tækniveitur eru verkfæri til að efla og miðla samfélagslegum áhrifum vísinda í samfélaginu.


Við tengjum verkefnin sem fara um okkar hendur við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Það er samfélagið sem hagnast mest á virkri tækniyfirfærslu með hagnýtingu vísinda í formi starfa, fjárfestingartækifæra, framþróunar í atvinnulífi og samkeppnishæfni samfélasins alls.

Ert þú fjárfestir, frumkvöðull eða þessi framsýni úr atvinnlífinu sem líst vel á tækifærin hjá okkur?

HAFÐU ENDILEGA SAMBAND

Markaðstorg tækifæranna

Við vinnum að fleiri spennandi verkefnum sem við munum geta kynnt innan skamms hér á síðunni. Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur áhuga og spurningar vakna!

Fyrirtæki sem við höfum stutt

Share by: